Fullt er á grunnnámskeið 2. ágúst nk. og greinilegt að fluguveiðimenn á Íslandi vilja bæta við sig þekkingu í köstunum sem er bara frábært! Að geta kastað flugu vel gerir oft gæfumuninn í veiðinni og gerir hana auk þess mikið skemmtilegri.
Nú á því að taka næsta skref og halda framhaldsnámskeið í fluguköstum 9. ágúst nk.
Þar verður haldið áfram með efni grunnnámskeiðsins og bætt við fleiri atriðum, svo sem að skjóta línunni út, tví-togs tæknin, hvernig á að kasta í vindasömum aðstæðum og margt fleira.
Námskeiðið verður á Miklatúni kl 19-21, 9. ágúst. Námskeiðsgjald er 5000 kr.
Skráning á borkur.smari@gmail.com eða í síma 666-1990